Íslam og framtíð evrópskrar menningar — Er hægt að nútímavæða íslam?
Á íslam samleið með vestrænum lýðræðisríkjum?
Hvaða breytingar vilja hófsamir múslimar gera á íslam?
Hafa hliðarsamfélög innflytjenda myndast í evrópskum löndum?
Hinn heimskunni trúarbragðafræðingur Robert Spencer, sem af mörgum er talinn einn helsti fræðimaður um íslam í hinum vestræna heimi í dag, og Christine Williams, sem er í stjórn Canadian Race Relations Foundation, stofnunar á vegum kanadískra stjórnvalda sem berst gegn kynþáttafordómum, og fyrir bættum samskiptum kynþátta, eru á leið til landsins.
Þau verða með fyrirlestra í Grand Hótel Reykjavík fimmtudaginn 11. maí, kl. 20.00 – 22.00 í salnum Gullteigur. Aðgangur er ókeypis, og allir velkomnir. Þeir sem vilja styrkja heimsóknina með fjárframlögum geta gert það á fyrirlestrinum.
Fyrirlestur Robert Spencer heitir Íslam og framtíð evrópskrar menningar. Spencer mun m.a. fjalla um hver reynslan af íslam, moskum og kóranskólum hafi verið á Vesturlöndum s.l. 40 ár. Einnig útskýra hugmyndafræði og aðferðir salafista, jíhadista og Bræðralags múslima. Að minnsta kosti einn þessara hópa er þegar með starfsemi á Íslandi.
Fyrirlestur Christine Williams ber heitið Er hægt að nútímavæða íslam? Christine fjallar m.a. um viðleitni hófsamra múslima til að tengja íslam við nútímann, eins og hann birtist í opnum og frjálslyndum lýðræðisríkjum. Hún hefur sjálf unnið mikið með hófsömum múslimum sem vilja sporna gegn öfgaöflum innan íslam.
Að fyrirlestri loknum svara Robert Spencer og Christine Williams fyrirspurnum úr sal.


Fyrirlestranir verða í Grand Hótel Reykjavík í salnum Gullteigur
Fyrirlestranir með Robert Spencer og Christine Williams verða haldnir í Grand Hótel Reykjavík, Sigtúni 38, kl. 20.00-22.00, fimmtudaginn 11. maí, í salnum Gullteigur.
Grand Hótel, í salnum Gullteigur
NÁNAR UM ROBERT SPENCER & CHRISTINE WILLIAMS
ÚTGEFIN VERK
Robert Spencer er metsöluhöfundur. Eftir hann hafa komið út 16 bækur sem fjalla m.a. um Múhameð spámann, íslam, pólitíska hugmyndafræði íslamista, Íslamska ríkið (ISIS) öryggismál og stjórnmál.
FYRIRLESARI
Spencer hefur haldið fyrirlestra við marga af helstu háskólum og hugveitum Bandaríkjanna. Meðal þeirra má nefna Stanford University, New York University, Heritage Foundation og Hudson Institute.
ÖRYGGISRÁÐGJAFI
Spencer hefur verið með námskeið um íslam og jíhad fyrir m.a. bandaríska dómsmálaráðuneytið, utanríkisráðuneyti Þýskalands, FBI, United States Central Command og Joint Terrorism Task Force (JTTF).
ÁLITSGJAFI
Spencer er eftirsóttur álitsgjafi í sjónvarpi og hefur m.a. komið fram hjá BBC, ABC News, CNN, PBS, MSNBC, O’Reilly Factor, CNBC, C-Span, CTV News, France24, Voice of Russia og króatíska ríkissjónvarpinu.
HÓFSAMIR MÚSLIMAR
Christine Williams er í stjórn Canadian Race Relations Foundation og hefur unnið að því með múslimum að finna leiðir á vegum kanadískra stjórnvalda til að milda kennisetningar íslams á Vesturlöndum.
BLAÐAMAÐUR
Christine Williams hefur fengið 9 alþjóðleg verðlaun fyrir blaðamennsku og sjónvarpsþáttagerð. Greinar eftir hana hafa m.a. birst í Wall Street Journal, USA Today, the Middle East Quarterly og Jihad Watch.

Sigurður Nordal segir í riti sínu Íslensk menning að evrópsk eða vestræn siðmenning sé runnin frá þremur uppsprettum: 1) Fornmenningu og heimspeki Grikkja og Rómverja, 2) Frumkristinni menningararfleifð, og
3) Siðum og hugsunarhætti hinna germönsku þjóða, sem frá upphafi þjóðflutninga til loka víkingaaldar settu mót sitt á nær allar þjóðir Norðurálfu. Þessar þrjár uppsprettur evrópskrar menningar hafa runnið saman og blandast margvíslega frá fornu fari.
Markmið Vakurs — Samtaka um evrópska menningu er að vernda og efla þessar þrjá aflavaka íslenskrar menningar. Einnig fjalla um stefnur og strauma sem brjóta í bága við grunneiningar íslensk samfélags sem er þjóðríkið og fjölskyldan.
Vakur vill flytja inn erlenda fræðimenn til fyrirlestrahalds, halda málfundi og birta reglulega frétta- og fræðsluefni á vef samtakanna. Einnig eftir föngum standa að útgáfustarfsemi á bókum og greinasöfnum um þjóðmál.
Markmið Vakurs — Samtaka um evrópska menningu er að vernda og efla þessa þrjá aflvaka íslenskrar menningar. Einnig fjalla um stefnur og strauma sem brjóta í bága við grunneiningar íslensks samfélags sem er þjóðríkið og fjölskyldan.
Vakur vill flytja inn erlenda fræðimenn til fyrirlestrahalds, halda málfundi og birta reglulega frétta- og fræðsluefni á vef samtakanna. Einnig eftir föngum standa að útgáfustarfsemi á bókum og greinasöfnum um þjóðmál.
PRÓFESSOR GAD SAAD RÆÐIR VIÐ ROBERT SPENCER
Gad Saad prófessor við Concordia-háskóla í Montreal, Quebec, Kanada ræðir við Robert Spencer forstöðumann Jihad Watch um kennisetningar íslams, hvað prédikað er í moskum múslima í Bandaríkjunum, horfurnar á umbótum á íslam, þöggun ráðamanna og hvers vegna honum var neitað árið 2013 um inngöngu í Bretland.
TENGIST FÉSBÓKINNI OKKAR
HAFA SAMBAND